Calendar
Veffundur á vegum Uppbyggingarsjóðs EES í Portúgal um fjármögnun sjávartengdra verkefna á sviði menntunar
Áhugasamir aðilar eru hvattir til að skrá sig á viðburðinn.
Meginmarkmið samstarfsins er að bæta færni í sjávartengdum efnum með aukinni menntun og þjálfun. Umsækjendur geta komið af öllum stigum menntakerfisins, frá grunnskóla upp á efsta háskólastig. Ætlunin er að veita stuðning við ný námskeið í sjávarútvegsmálum, starfsnámsbrautir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, þverfaglegt framhaldsnám, sumarskóla, sveigjanleika nemenda, námskeið, kennaraskipti og námsstyrki.
- Lesa nánari upplýsingar um auglýsingu #5 á sviði menntunar
- Tengiliður hjá Rannís: Egill Þór Níelsson