Calendar
Fjármál, uppgjör og utanumhald verkefna í Horizon Europe
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu reglur, uppgjör og önnur grundvallaratriði er varða utanumhald verkefna í Horizon Europe. Náskeiðið stendur frá klukkan 9:00-17:00 báða dagana.
Námskeiðið fer fram á ensku og er ætlað fjármálastjórum, verkefnastjórum, rannsóknastjórum og öðrum sem hafa aðkomu að verkefnum á vegum Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlunar Evrópusambandsins
Leiðbeinandi er Raphael de Vivans sérfræðingur EFMC með áherslu á fjármál og uppgjör
- Hámarksfjöldi þátttakenda er 30
- Tími: 26 og 27 júní 2024, klukkan 9:00 – 17:00 báða dagana
- Staður: Salurinn Gallerí á Hótel Reykjavík Grand, Sigtún 28, 105 Reykjavík
- Námskeiðsgjald: 60.000 kr.
- Innifalið: námskeiðsgögn, hádegismatur og kaffiveitingar