Fyrirtækjastefnumót á Íslensku sjávarútvegssýningunni – IceFish 2024
Sýningin er haldin í 14. sinn sem hér á landi. Á sýningunni má meðal annars sjá nýjustu tæki, búnað og þjónustu sem sjávarútveginum býðst, allt frá fiskileit, veiði, vinnslu og pökkun, til markaðssetningar og dreifingar fullunnar vöru.
Fyrirtækjastefnumót verður í boði á sýningunni en þau hafa notið vinsælda á undanförnum sýningum og það er von okkar að árangurinn verið áfram góður. Þátttakendur hafa myndað ný og öflug viðskiptatengsl og kannað ný markaðstækifæri. Á síðustu sýningum hafa að meðaltali yfir 90 þátttakendur frá 24 löndum tekið þátt á yfir hundrað fundum.
Enterprise Europe Network stendur fyrir þessum viðburði innan IceFish-sýningarinnar og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Fyrirtækjastefnumótið fer fram fimmtudaginn 19. september í sýningarhöll 2, í Smáranum í Kópavogi. Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn. Skráning og frekari upplýsingar eru á ensku á vefsíðu fyrirtækjastefnumótsins:
Matchmaking at IceFish 2024.
Fyrirtækjastefnumótið er skipulagt af Enterprise Europe Network á Íslandi sem er starfrækt hjá Rannsóknamiðstöð Íslands-Rannís, pg er haldið í samstarfi við Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýninguna.