Calendar
Kynningarfundur í Háskólanum á Akureyri um LIFE áætlunina
Þann 9. mars kl. 14.30-16.00 verður kynning á LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB. Háskólinn á Akureyri, Borgir, Stofa R402.
Dagskrá:
- Hvað er LIFE? Gyða Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís og landstengiliður áætluninnar, segir frá áætluninni; markmiðum hennar, undiráætlunum og gerðum styrkja.
- Á ég mér LIFE? - Hvernig Ottó reyndi en mistókst og reyndi svo aftur að sækja LIFE styrk. Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi, samstarfsverkefni um bætta nýtingu auðlinda og nýsköpun á Norðurlandi, mun svo fjalla um reynslu sína af því að taka þátt í umsóknarferlinu.
Kynningarnar fara fram á ensku en hægt verður að spyrja og spjalla á íslensku að kynningum loknum.
Fundurinn er ætlaður öllum sem áhuga hafa á að kynna sér þessa áætlun og hvaða tækifæri hún hefur uppá að bjóða.