Innviðasjóður
Innviðasjóður hefur opnað fyrir innsendingu umsókna m.a. um verkefni á nýjan vegvísi um rannsóknainnviði á Íslandi.
Umsókn um verkefni á nýjan vegvísi er skipt í 3 megin hluta:
1. Samantekt
Í þessum hluta er gerð grein fyrir markmiðum með uppbyggingu innviða og mikilvægi þeirra og hverju þeir munu breyta miðað við stöðuna í dag, hvernig innviðirnir munu leiða til samstarfs á milli hópa og nýliðunar. Einnig er í þessum hluta gerð grein fyrir framtíðarsýn og og áætlaðri fjármögnunarþörf.
2. Skipulag og stjórnun
Í þessum hluta er gerð gerð fyrir kostnaði, fjármögnun, staðsetningu og rekstri inviðanna.
3. Lýsing á innviðum
Í þessum hluta, er innviðum sem sótt er um lýst og forgangsraðað fyrir fyrstu úthlutun (í byrjun árs 2025).
Vegvísirinn er (að öllu óbreyttu) hugsaður til þriggja eða fjögurra ára, þannig að verkefni sem verða valin á vegvísinn geta sótt um árlega í þrjú til fjögur ár.
Forgangsröðun innviðanna er því mikilvæg fyrir úthlutun hvers árs.
Í umsókninni er er rými fyrir forgangi 1 til 7 en ekki er nauðsynlegt að nýta þá alla og einnig er hægt að óska eftir formi með fleiri en forgangsliðum.
Tímalína fyrir tillögur og umsóknir á nýjan vegvísi um rannsóknainnviði | |
---|---|
September 2024 |
Opnað fyrir umsóknir á nýjan vegvísi og almennar umsóknir í Innviðasjóð |
31.10.2024 | Umsóknarfrestur til að senda umsóknir til Innviðsjóðs rennur út |
Janúar 2025 | Úthlutun úr Innviðasjóði tilkynnt |
Kynningarmyndband um Innviðasjóð.
Hægt er að skoða öll myndbönd um Innviðasjóð á Youtube rás Innviðasjóðs:
Skoða myndbönd
Hvert er markmiðið?
Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Markmiðið með sjóðnum er að efla innlendar vísindarannsóknir með því að skapa nýja möguleika til rannsókna með fjármögnun tækjabúnaðar/aðstöðu sem ekki er aðgengileg nú þegar.
Hvað er styrkt?
Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.
Innviðasjóður veitir eftirfarandi styrktegundir:
1. Tækjakaupastyrki
2. Uppbyggingarstyrki
3. Uppfærslustyrki
4. Aðgengisstyrki
5. Innviði á vegvísi
Skilyrði úthlutunar
Gert er ráð fyrir að umsækjandi leggi til mótframlag að lágmarki 25%.
Framlag Innviðasjóðs skal að lágmarki vera 3 milljónir króna fyrir Tækjakaup, Uppbyggingu, Uppfærslu eða viðhalds. Ekkert lágmark er á Aðgengisstyrk.
Vinsamlegast kynnið ykkur reglur Innviðasjóðs áður en sótt er um.