Calendar
Samnorrænn upplýsingadagur COST
Fundurinn er er fyrsti samnorræni upplýsingadagur COST áætlunarinnar. Hann er haldinn í samstarfi landsfulltrúa áætlunarinnar á Norðurlöndunum, þar með talið Færeyjum, og COST.
Upplýsingadagurinn er opinn öllum rannsakendum og frumkvöðlum á hvaða fræðasviði sem er, óháð reynslu. Ungt vísindafólk er sérstaklega hvatt til að sitja fundinn.
Markmiðið er að kynna hvernig eigi að taka þátt í COST verkefnum og ávinninginn af þátttöku. Einnig verður fjallað um hvernig eigi að leiða verkefni og/eða taka þátt í að skrifa umsókn um COST verkefni. Þátttakendur í COST verkefnum munu deila reynslu sinni og mun Ísland þar eiga sinn fulltrúa.
Skráning
Skráningu lýkur 22. apríl næstkomandi.
Dagskráin er í mótun og verður auglýst þegar nær dregur.