Samstarf milli Bretlands og Íslands á sviði rannsókna á norðurslóðum
Fyrsti umsóknarfrestur er 19. janúar 2024 en þann 20. nóvember nk. klukkan 10:00 – 12:00 verður haldinn kynningarfundur á netinu þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að kynna sér áætlunina auk þess að tengjast öðrum hugsanlegum umsækjendum.
Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn:
Eins og fyrr segir er áætlunin opin fyrir vísindafólk með aðsetur í Bretlandi og á Íslandi á fjölmörgum vísindasviðum á borð við umhverfisfræði, orkurannsókna, jarðfræði, nýsköpunar, gervigreindar, geimrannsókn, félagsvísinda og heilbrigðisrannsókna svo dæmi sé tekin. Einungis umsóknir með þátttöku vísindafólks í báðum löndum eru gjaldgengar.
Sérstaklega verður litið til vísindafólks sem er tiltölulega skammt á veg komið í rannsóknum (e. early career scientist) sem og rannsóknahópum sem beina sjónum sínum að rannsóknaefnum sem eru litið rannsökuð (e. under-represented).
Áætlunin er styrkt af Department for Science, Innovation and Technology í Bretlandi, og framkvæmd í samstarfi við Utanríkisráðuneyti Íslands og Rannís.
Allar nánari upplýsingar um áætlunina og leiðbeiningar um hvernig sótt er um má finna á vef Norðurslóðaskrifstofu umhverfisrannsóknaráðs Bretlands: