Calendar
Samtal um græna styrki á Akureyri
Á fundinum verður fjallað um sóknartækifæri fyrir íslenska aðila í Evrópuáætlanir á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála, og þá þjónustu sem umsækjendum stendur til boða.
Þá verður einnig fjallað sérstaklega um verkefnið RECET, en það hlaut nýverið styrk úr LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. RECET er samstarfsverkefni fimm landa með Ísland í fararbroddi og eru það Íslensk nýorka og Eimur sem leiða verkefnið hér á landi með þátttöku Vestfjarðastofu og SSNE.
Dagskrá:
- Almennt um Evrópustyrki og aðkomu Íslands að þeim
- Horizon Europe – Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB
- LIFE – Umhverfis- og loftslagsáætlun ESB
- European City Facility – Styrkir til að útbúa fjárfestingaráætlanir fyrir sveitarfélög vegna orkuskipta
- RECET – Vegferðin sem leiddi til styrks, staðan í dag og næstu skref
- Samband íslenskra sveitarfélaga í Evrópuverkefnum – Ólíkar leiðir til samstarfs og þátttöku
- Þjónusta Rannís og fyrstu skrefin í sjóðasókn
Upplýsingar:
- Tími: Miðvikudagur 22. nóvember kl. 12:00 -13:00
- Staðsetning: Borgir, Norðurslóð 4, 600 Akureyri (Herbergi: R262) (einnig streymt á Teams)
- Vinsamlegast skráið þátttöku:
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Mynd: Brian Gratwicke