Calendar
Norræna-kínverska norðurslóðaráðstefnan
Ráðstefnan er haldin af Kínversk-norrænu norðurslóðamiðstöðinni (CNARC) og Tongji háskóla og er hún helguð vísindasamvinnu og samstarfi um sjálfbærni á norðurslóðum.
Á ráðstefnunni verða fjögur áherslusvið:
- Alþjóðasamstarf á norðurslóðum
- Norður-Íshafið í hlýnandi loftslagi
- skipasiglingar á norðurslóðun og umhverfismál þeim tengdum
- Hlutverk orkuskipta sem svörun við loftslagsbreytingar.
Fyrir áhugasama er bent á að frestur til að senda inn ágrip að erindi fyrir ráðstefnuna er til og með 28. febrúar 2025.
Ágrip skal senda á Pan Min, Prófessor, Tongji University , panmin417@163.com og Sandy Shan , framkvæmdastjóri Kínversk-norrænu norðurslóðamiðstöðvarinnar, cnarc2025@126.com