March 2025

March 2025

(Skip calendar)
M T W T F S S
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Calendar

Upplýsingadagar LIFE áætlunarinnar

  • 13.5.2025 - 15.5.2025, Upplýsingadagur

Samhliða viðburðinum verður opnaður tengslavefur þar sem boðið er upp á að bóka tvíhliða fundi við aðra umsækjendur og landstengiliði frá  13. maí til 30. september 2025.
Rannís mun einnig halda rafrænan upplýsingafund um LIFE áætlunina fyrir íslenska umsækjendur síðar í maí og verður viðburðurinn auglýstur sérstaklega þegar nær dregur.

Nánari upplýsingar og skráning á upplýsingadag

Rannís vekur athygli á því að LIFE köll fyrir árið 2025 hafa nú verið opinberuð á heimasíðu CINEA. Stefnt er á að opna fyrir þau þann 24. apríl 2025.

LIFE áætlun Evrópusambandsins hefur fjármagnað verkefni á sviði loftslags- og umhverfismála frá árinu 1992. Núverandi tímabil áætlunarinnar tekur til áranna 2021-2027 og eru rúmlega 5,4 milljarðar evra til úthlutunar á tímabilinu.
Undir áætlunininni eru fjórar undiráætlanir:

  • Náttúra og líffræðileg fjölbreytni
  • Hringrásarhagkerfið
  • Loftslagsbreytingar, aðlögun og aðgerðir
  • Orkuskipti

Öll áhugasöm um áætlunina eru hvött til að setja sig í samband við landstengiliði LIFE áætlunarinnar hjá Rannís.








This website is built with Eplica CMS