May 2025

May 2025

(Skip calendar)
M T W T F S S
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Calendar

Velkomin á kynningu á styrkjamöguleikum Nordplus

Nordplus er stærsta menntaáætlun Norðurlandanna og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig. Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 1. febrúar 2023 og því býður Rannís – Rannsóknamiðstöð Íslands sem sér um Nordplus á Íslandi í samstarfi við Norræna húsið til kynningafundar miðvikudaginn þann 9. nóvember.Kynningin verður haldin kl. 17:00-19:00 og kynnt verða öll þau tækifæri sem Nordplus býður upp á. Ef þið hafið í huga að sækja um styrk eða viljið heyra meira um umsóknarferlið fyrir verkefni þá er tilvalið að taka þátt og spyrja allra þeirra spurninga sem þið hafið. Starfsfólk Nordplus verður á staðnum, segir frá umsóknarferlinu og gefur góð ráð varðandi verkefnin.Viðburðurinn er opinn öllum en þið megið skrá ykkur hér .
Dagskrá:

  • 17:00 – Kynning á Nordplus og undiráætlunum
  • 17:30 – Opið fyrir spurningar, spjall og ráðgjöf – starfsfólk Rannís svarar spurningum
  • 18:15 – Mikael Lind og Johanna Sjunnesson flytja fallega tóna
  • 18:35 – Spjall og léttar veitingar


Smellið hér til að finna facebook síðu viðburðarins

Nánari upplýsingar veitir Eydís Inga Valsdóttir

<eydis.i.valsdottir@rannis.is>








This website is built with Eplica CMS