Calendar
Frá fræi til frama: Vorfundur Tækniþróunarsjóðs
Fundurinn fer fram á íslensku og hefst klukkan 15:00, auk þess sem hann verður í beinu streymi.
Fundurinn verður haldinn í Karólínustofu á Hótel Borg.
Tækniþróunarsjóður fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og við þau tímamót verður horft til fortíðar, nútíðar og framtíðar fyrir Tækniþróunarsjóð og nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Gestir fá að heyra reynslusögur frá nýsköpunarfyrirtækjum og í lok fundar verður vorúthlutun sjóðsins árið 2024 fagnað.
Viðburðurinn er opinn öllum en gestir beðnir um að skrá þátttöku.
Dagskrá fundar
- Opnunarávarp
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
- Tækniþróunarsjóður í 20 ár
- Sigurður Björnsson, sérfræðingur hjá Rannís
- Áhrifamöt Tækniþróunarsjóðs
- Gunnar Óskarsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
- Reynslusaga: Oculis
- Páll Ragnar Jóhannesson, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Oculis
- Reynslusaga: SoGreen
- Guðný Nielsen, stofnandi og framkvæmdastjóri SoGreen
- Blómstrandi samstarf Klak og Tækniþróunarsjóður
- Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK
- Vorúthlutun Tækniþróunarsjóðs 2024
- Guðrún Inga Ingólfsdóttir, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs
Fundarstjóri: Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.
Að loknum fundi er gestum boðið upp á léttar veitingar.
Fögnum vorúthlutun og styrkþegum Tækniþróunarsjóðs 2024.