Vísindakakó fyrir forvitna krakka á Borgarbókasafninu Kringlunni 25. janúar
Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.
Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.
Laugardaginn 25. janúar mun Dr. Arnar Eggert Thoroddsen ræða við gesti um störf sín sem félags- og fjölmiðlafræðingur við Háskóla Íslands auk starfa hans sem
tónlistargagnrýnandi og -fræðingur.
Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.
Vakin er athygli á því að Vísindakakó verður haldin alls tíu sinnum í vetur á mismunandi bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin